|
DEXTA Orkutæknilausnir býður uppá sérfræðiráðgjöf til lágmörkunar á orku- og vatnsnotkun fyrirtækja, einkum framleiðslufyrirtækja.
Með þessu er dregið úr kostnaði og sóun sem hefur í för með sé að rekstur fyrirtækja verður umhverfisvænni, hagkvæmari og samkeppnishæfari.
Nánar tiltekið:
- Draga úr eða lágmarka: Orku- og vatnsnotkun,
- Bæta eða hámarka: Endurnýtingu orku og vatns, ásamt nýtni, hagnaði og samkeppnishæfni.
- Sem leiðir til: Umhverfisvænni og arðsamari fyrirtækja, ferla og vöru.
Almennt er orkunotkun 5-70% meiri en fræðilega eða nauðsynlega þarf að vera af ýmsum ástæðum.
Algengast er þó að draga megi á einfaldan hátt, stundum án teljandi aukakostnaðar, úr orku og/eða vatnsnotkun sem nemur 3-15% og síðan á bilinu 10-25% með fjárfestingum sem borga sig á u.þ.b. einu ári.
Ofangreindu til rökstuðnings má nefna að Evrópusambandið ætlast til þess að hvert aðildarlandanna dragi úr orkunotkun sem nemur 1% árlega á næstu 20 árum, þar sem þar á bæ er talið að um 20-25% af núverandi orkunotkun sé óþarfa orkunotkun, m.a. vegna lélegra stýringa, gamals óhagkvæms búnaðar, slæmrar/gamallar hönnunar/tækni eða rangra stillinga (óþarflega heitt eða óþarflega kalt).
Að því gefnu að forathugun á sparnaðarmöguleikum í fyrirtæki eða rekstri sé á bilinu 350-500.000 kr. og að ætlaður lágmarkssparnaður geti verið 3-5%, þá ættu fyrirtæki sem greiða samanlagt um og yfir 10 milljónir á ári fyrir kalt vatn, hitaveituvatn og rafmagn að láta yfirfara/skoða fyrirtækið og kerfin - í heild sinni (mjög mikilvægt).
Endurbætur og sparnaðar næst með einu eða blöndu af eftirfarandi:
-
Einfaldlega uppfæra, bæta eða endurstilla stýringar ferla eða verksmiðju,
-
Bæta búnaði við ferilinn eða starfsemina,
-
Endurhanna ferilinn eða starfsemina að hluta eða í heild sinni,
-
Skipta út núverandi búnaði með (nýjum) hagkvæmari eða hentugri búnaði.
|